AÐ ÞEKKJA VÖRUNA
FerðamannaiðnaðurinnClicca per leggere
Ferðaþjónustan telst vera mikilvægt verkfæri fyrir hagkerfi samtímans.
Hún getur haft áhrif á hagvöxt, atvinnusköpun, aukna atvinnuþátttöku, félagsleg áhrif, félagslega þátttöku og útilokun, þróun upplýsingatækni sem hluta af stefnumörkun í viðskiptum samtímans. (Daft, 2008, 2010, 2011, 2015).
StaðsetningClicca per leggere
Það að vera staðsettur úr alfaraleið getur verið styrkleiki. Einangrun getur verið kostur við ferðamannastað.
• Á svæðum þar sem fyrir er ferðamannastraumur þá geta ýmis þjónustufyrirtæki blómstrað.
• Afskekkt svæði geta nýtt sér ferðaþjónustu til að skapa sér atvinnu
Styrkleikar afskekktra svæðaClicca per leggere
Kynning á svæðinu og þróun viðskiptahugmyndar þinnar:
Leiðir til að nýta sér ferðamannastraum:
Það er hægt að skapa sér atvinnutækifæri í ferðaþjónustunni, hugsaðu út fyrir gistingu og veitingastaði, hvaða aðra þjónusta er hægt að bjóða.
Það að geta nálgast alls konar upplýsingar án mikillar fyrirhafnar gefur mikla möguleika.
Þátttaka - virkni
Ein leið er að skapa eitthvað nýtt. Kynntu þér hvað er að gerast á markaðnum.
Hvernig er best að kynna hinar afskekktu byggðir og að skapa vinsældir svæðisins?
Veikleikar afskekktra byggða Clicca per leggere
Leiðir til að yfirstíga veikleikana
Netið er leið til að tengjast fólki allsstaðar
Flugfélög, skipafélög og ferðaskrifstofur
Notaðu samfélagsmiðla til að yfirstíga fjarlægðir
AÐFERÐIR TIL AÐ YFIRSTÍGA ÁSKORANIR Á AFSKEKKTUM STÖÐUM
Ferðaþjónusta sem atvinnugrein -afskekkt svæðiClicca per leggere
Að skilgreina svæði sem afskekktan áfangastað er þýðingarmikið skref og hluti af uppbyggingu áfangastaðarins.
Þróun áfangastaðar á afskekktum svæðum eru óvenjuleg þar sem nauðsynlegt er að skilgreina þá sérstöku eiginleika sem svæðið hefur til að tryggja það að einangrun staðarins verði mikilvægt verkfæri í uppbyggingunni.
Uppbygging áfangastaðaClicca per leggere
Stefnumörkun er lykilinn að velgengni í viðskiptum.
Nýttu þér verkfæri eins og t.d HR, IT, Land
og Financial flexibility.
,,Stefnumörkun er enn mikilvægasti þáttur velgengni í viðskiptum og getur gefið fyrirtækjum sem nýta sér hana, samkeppnisforskot þegar þau ná að nýta sér verkfæri eins og t.d. HR, IT, Land og Financial flexibility.“ (Kaplan & Norton, 2005).
Stefnumörkun er öflugt verkfæri sem getur gert fyrirtækum, t.d. frumkvöðlum, einyrkjum mögulegt að öðlast dýpri skilning á markaðnum og aukið hæfni þeirra í að ná til bæði núverandi og framtíðar viðskiptavini. Þannig getur einangrun orðið styrkleiki.
Í vinnu við stefnumörkun þarf að hafa í huga markaðsransóknir, markaðstæki sem og fjárhagsáætlun.
Umhverfis- og samfélagslegir þættirClicca per leggere
· Árstíðabundin eftirspurn
· Hagnaðurinn fer út af svæðinu
· Verðbólga á svæðinu
· Áhrif á samsetningu vinnumarkaðarins
· Neikvæð áhrif á menningu heimafólks
· Eyðilegging landslags og lífríkis
· Sorp, rusl, útblástur og önnur mengun
· Álag á innviði
Allt eru þetta vandamál sem tengjast ferðaþjónustunni.
Margir neytendur hafa í huga umhverfisspor vörunnar/þjónustunnar við kaup.
Vertu breytingin sem þú vilt sjá!
SAMSKIPTI OG TENGSL VIÐ MARKHÓPA
Stafræn samskiptiClicca per leggere
Netið tengir okkur öll. Við getum nýtt okkur þær leiðir sem bjóðast þar til að yfirstíga fjarlægðir og nýta okkur kosti afskekktra svæða s.s. ósnerta náttúru og þögnina.
Notaðu stafræna tækni til að kynna þá vöru/þjónustu sem þú hefur upp á að bjóða. Blogg og vefsíður hafa áhrif á ákvarðanatöku neytenda.
Þekktu tíðarandann og leitastu við að vinna í takt við hann
Skoðaðu hvað hefur áhrif á hvert ferðamannastraumurinn fer
Samfélagsmiðlar
Byggðu samfélag á samfélagsmiðlum! Samfélagsmiðlar eru áhrifarík leið til að kynna fyrirtækið sitt.
Ekki reyna að fá sem flesta fylgjendur, reyndu heldur að einbeita þér að því að finna viðskiptavini sem eru áhugasamir og tryggir. Það er fólkið sem er líklegt til að deila innleggjum/efninu þínu og tengja þig við aðra.
Það eru til margir ólíkar aðferðir til markaðssetningar á netinu en samfélagsmiðlar hafa haft mikil áhrif á hefðbundna markaðssetningu. Með þeim verða til nýjar leiðir til að nálgast mögulega viðskiptavini og eiga samskipti við viðskiptavini á öllum stigum þjónustunnar.
Réttu samfélagsmiðlarnirClicca per leggere
Samfélagsmiðlarnir eru margir og þeim mun fjölga
Það er mikilvægt að deila efninu sínu á réttum vettvangi svo að það beri árangur.
Þú verður að hafa í huga hver markhópurinn þinn er og hvert fyrirtækið þitt er þegar þú velur þér vettvang. Það er mikilvægt að nota þá samfélagsmiðla sem markhópurinn þinn notar svo þau geti tengst fyrirtækinu þínu.
Útgáfuplan fyrir samfélagsmiðla
Til að skipuleggja þessa vinnu er t.d. hægt að búa til útgáfuplan fyrir samfélagsmiðla til að koma í veg fyrir mistök og að vinnan verði markvissari. Útgáfuplanið hjálpar þér við að búa til markmið og leiðir til að ná þeim og fylgjast meðframvindu vinnunar
Skapaðu samfélagClicca per leggere
Deildu myndum og myndböndum
Sjónrænt efni vekur athygli þegar fólk skrollar niður á samfélagsmiðlum.
Það er því líklegra að fólk skoði það, sjái það og staldri við slíkt efni.
Myndbönd eru sérstakalega góður miðill til að fanga athygli fólks, til að sýna persónuleika þinn og ástríðu þína í að þjónusta viðskiptavinina.
Deildu og fáðu fólk til að taka þáttClicca per leggere
Fáðu fólk til að taka þátt
Fyrirtækið þitt þarf að vera virkt í samskiptum til að nýta sér þá möguleika sem felast í því að mynda tengsl. Póstaðu efni sem fólk vill lesa, spyrðu spurninga og líkaðu, deildu og settu athugasemdir við færslur annarra. Settu af stað samkeppnir til að vekja athygli á þér.
Ekki auglýsa of mikið
Það er ekki góð hugmynd að auglýsa sig í hverjum pósti.
Best er að búa til efni sem fólk mun hafa gaman að og vill lesa.
VirðiClicca per leggere
Það besta sem þú getur gert er að búa til efni sem færir fylgjendum þínum eitthvað sem er þeim einhvers virði. Nýjar upplýsingar, nýtt sjónarhorn/skilningur, skemmtu þeim, þetta snýst um að færa þeim eitthvað sem er á einhvern hátt gagnlegt fyrir þau.
|