ÓÁÞREIFANLEGAR EIGNIR
Hvað eru óáþreifanlegar eignir?Clica para leer
Óáþreifanleg eign er eign sem er ekki sjáanleg eða áþreifanleg
❏ Vörumerkjaskráning
❏ Þekking/Kunnátta
❏ Nýsköpun
❏ Hugverkaréttur (t.d einkaleyfi, vörumerki og höfundaréttur)
❏ Eignaskrá/birgðaskrá
❏ Fjáreign (eins og verðbréf og skuldabréf)
Óáþreifanlegar stafrænar eignir Clica para leer
❏ Efnahagsleg-, félagsleg- og tæknileg þróun er að hraða útbreiðslu stafrænnar tækni
❏ Stafrænar eignir eru alltaf að auka mikilvægi sitt meðal óáþreifanlegra eigna
❏ Stafræn samfélgög = Facebook hópar, aðdáendasíður...
❏ Fylgjendur = Samanlagður fjöldi allra fylgjenda á mismunandi samfélagsmiðlum
❏ Stafrænn sýnileiki = Jákvæð fyrri reynsla gerð sýnileg á netinu með athugasemdum og samskiptum
- Lén á internetinu: Þau sem hafa nafn vörumerkis í léninu og Exact Match Domains (EMD)
- Að hafa nafn vörumerkis í léninu er grundvallaratriði til að fá bestu svörunina frá leitarvélum
- Exact Match Domain er lén sem inniheldur lykilorð sem eru líkleg til að vera slegin inn á leitarvélum og þ.a.l. birtast í leitarniðurstöðum (t.d. ef þú ert að leita að flugrútu í London, EMD væri þá www.airportshuttlelondon.com).
Þetta skiptir gríðalega miklu máli!
Mikilvægi óáþreifanlegra eignaClica para leer
Óáþreifanlegar eignir eru í raun mikilvægari heldur en áþreifanlegar eignir, tökum dæmi:
- Það er tilgangslaust að eiga besta tækjabúnaðinn ef þig skortir hæfnina til að láta tækjabúnaðinn virka rétt
- Það er tilgangslaust að vera með góða vöru ef vörumerkið okkar er lélegt og óþekkt
Nú til dags er erfitt fyrir fyrirtæki að verða farsælt nema það hugsi um óáþreifanlegar eignir sínar og vinni vel í:
- Vörumerki
- Orðspori
- Þekkingu
- Markaðssetningu
HUGVERKARÉTTINDI (IPR)
Hvað eru hugverkaréttindi?Clica para leer
Frumkvöðlar og fyrirtækjaeigendur verða að þekkja grundvallaratriði í lögum um hugverk (IP) til þess að geta varið verk sín og hugmyndir fyrir ósanngjarnri samkeppni.
Með hugverkum er átt við einstaka hluti sem þú hefur búið til og geta leitt til fjárhagslegs ávinnings
Hugverkaréttindi (IPR) eru skilgreind með lögum sem sett voru til að hvetja og verja skapandi fólk með því að veita þeim einkarétt á vinnu sinni í ákveðin tíma.
Að vernda eigin hugverkClica para leer
Hægt er að verja hugverk með því að notast við:
1) Einkaleyfi: Einakleyfi er eignaréttur á uppfinningu, sem gerir þeim sem á einkaleyfið að einu manneskjunni sem er, skv. lögum, leyfilegt að framleiða, selja eða nota uppfinninguna. Þegar einkaleyfi er til staðar má eigandi þess grípa til lagalegra aðgerða gegn hverjum þeim sem notar uppfinninguna án leyfis.
Ef einkaleyfi er ekki til staðar þá er ekki hægt að nota þessa lagalegu vörn gegn einhverjum sem notar hugmyndina þína!
2) Vörumerki: Vörumerki er auðkennandi merki sem aðgreinir vöru eða fyrirtæki frá samkeppnisaðilum.
Vörumerki getur verið:
• Orð
• Teikning
• Mynd
• Tákn/merki
3) Iðnaðarleyndarmál: Iðnaðarleyndarmál er formúla, aðferð, tæki eða aðrar viðskiptaupplýsingar sem fyrirtæki halda leyndu vegna þess að það gefur því viðskiptalegt forskot á samkeppnisaðila.
Iðnaðarleyndarmál geta haldist örugg með því að:
• Samningur um þagnareið: Samningur þar sem aðilar samþykkja að halda þeim upplýsingum sem samningurinn nær yfir, leyndum.
• Takmarkaður aðgangur að trúnaðarupplýsingum: Hentugt til að koma í veg fyrir aðgengi að trúnaðarupplýsingum.
• Kvaðaákvæði: Samningur sem kemur í veg fyrir að starfsmenn ljóstri upp upplýsingum eftir að þeir láta af störfum
• Aðrar aðferðir til að koma í veg fyrir útbreiðslu upplýsinga
4) Höfundaréttur: Þú hefur einkaleyfi yfir þínum verkum og notkun á þeim.
Höfundaréttur á best við rithöfunda og tónskáld, en tónlistarmenn, leikarar, plötuframleiðendur, og útvarps- eða sjónvarpsstjórnendur geta einnig fengið höfundarréttarleyfi sem gildir til styttri tíma.
Þegar höfundarréttur er til staðar, þá er þú sá eini sem er hefur leyfi til að:
• Breyta
• Dreifa
• Framkvæma
• Framleiða
• Sýna
• Afrita efnið
PERSÓNU- OG GAGNAVERND INNAN RAMMA ESB - ALMENNA PERSÓNUVERNDARREGLUGERÐIN (GDPR) FYRIR EINYRKJA
GDPR YfirlitClica para leer
Almenna persónuverndarreglugerðin (EU) 2016/679 (GDPR) er reglugerð innan lagaramma Evrópusambandsins um friðhelgi og gagnavernd fyrir alla ríkisborgara innan Evrópusambandsins (EU) og Evrópska efnahagssvæðisins (EEA).
Reglugerðin felur einnig í sér ákvæði um meðferð á persónuupplýsingum utan EU og EEA.
Almenna persónuverndarreglugerðin kveður á um fjölda verklagsreglna þegar kemur að málefnum sem snerta persónuupplýsingar og herðir á öllum aðferðum um meðferð þessara upplýsinga hjá félagsamtökum, fyrirtækjum, ríkisstofnunum ofl.
Sem einyrki í frumkvöðlastarfi, þarftu að vera meðvitaður um að í hvert skipti sem þú tekur á móti, meðhöndlar, geymir, vinnur úr eða flytur áfram, persónuupplýsingar þriðja aðila, þarftu að fylgja í einu og öllu ákvæðum almennu persónuverndarreglugerðarinnar.
Ef þú brýtur gegn reglugerðinni má búast við umtalsverðri sekt, allt að 20 milljón evrum, eða 4% af ársveltu þinni, fer eftir því hvort er hærra.
Söfnun persónuupplýsingaClica para leer
Óheimilt er að safna persónulegum upplýsingum án samþykkis viðfangsins. Sá sem er að safna persónuupplýsingum skal geta sýnt fram á samþykki viðfangsins fyrir öflun upplýsinganna.
Ennfremur, vinnsla með eftirfarandi flokka af persóunuupplýsingum fellur undir enn strangari reglur:
- Upplýsingar sem segja til um kynþátta- eða trúarlegan uppruna
- Pólitískar skoðanir
- Trúar- eða heimspekilegar skoðanir
- Stéttarfélagsaðild
- Erfðafræðilegar- og líftölfræðilegar upplýsingar sem nota má til að auðkenna einstaklinga
- Heilbrigðisupplýsingar
- Upplýsingar um kynlíf eða kynhneigð
UpplýsingalekiClica para leer
Skv. Almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR), er sá sem hefur upplýsingar í fórum sínum ábyrgur fyrir öllu misferli á upplýsingunum, svo sem eyðingu á þeim, óviljandi |